Persónuvernd
Kveikjarinn er rekinn af Gebo Kano ehf., kt. 5309023310, Logafold 92. Fyrirspurnir um gögn og aðgang má senda á gebokano@gebokano.com.
Þegar þú skrifar án aðgangs
Uppköst geymast í þessum vafra. Þau berast ekki sjálfkrafa á aðgang þinn. Aðrir sem nota sama vafrasnið geta séð þau. Sæktu skjal til að eiga sjálfstætt afrit; hreinsun vafragagna getur eytt uppköstunum.
Í „Mín skrif“ getur þú valið eigin gestauppköst úr þessum vafra og afritað þau á innskráðan aðgang. Ekkert flyst án þess að þú veljir það. Frumritin verða áfram í vafranum, einnig eftir útskráningu.
Á síðunni „Uppköst í þessum vafra“ getur þú sótt afrit og eytt eigin gestauppköstum. Eyðing er varanleg á þessu tæki en eyðir ekki afritum á aðgangi. Aðeins auðkenni eydds uppkasts verður eftir í vafranum til að gömul vistun endurstofni ekki textann.
Þar getur þú líka flutt inn JSON-afrit af einu uppkasti. Skráin er aðeins lesin á tækinu og er ekki send á netþjón. Uppkastið vistast sem nýtt afrit í þessum vafra þar til þú eyðir því eða vafragögn eru hreinsuð. Aðrir sem nota sama vafrasnið geta séð afritið. Innflutningur skráar afritar það ekki á aðgang.
Prófun aðganga
Aðgangar og vistun á netinu eru í undirbúningi. Prófunarumhverfið er eingöngu ætlað tilbúnum prófunargögnum. Ekki nota raunveruleg nemendagögn þar.
Þegar innskráning er virk notum við Google til að staðfesta aðgang. Innskráning óskar eftir auðkenni, netfangi og grunnupplýsingum um prófíl, ekki aðgangi að Classroom eða Drive. Vafrakökur halda innskráningu virkri.
Uppköst á aðgangi innihalda titil, texta, verkefni, valdar kveikjur og vistunartíma. Þau eru vistuð í Supabase og aðgangur að þeim takmarkaður við eiganda. Breytingar vistast sjálfkrafa á 30 sekúndna fresti; vistunarhnappurinn vistar strax. Bíddu eftir staðfestingu áður en þú lokar skjali. Óvistaðar breytingar geymast aðeins á opnu síðunni nema þú veljir að treysta tækinu.
Endurheimt á eigin tæki
„Treysta þessu tæki“ er sjálfgefið óvirkt. Ef þú virkjar það geymir vafrinn staðbundin endurheimtarafrit af óvistuðum skrifum. Aðrir með aðgang að sama vafrasniði geta nálgast gögnin; notaðu þetta aðeins á eigin tæki. Til að opna afrit aftur þarftu netsamband og innskráningu á sama aðgang.
Afrit eru fjarlægð eftir staðfesta vistun á aðgangi, við útskráningu eða þegar traust er afnumið. Þau renna út eftir sjö daga frá síðustu breytingu á afriti og eru hreinsuð við næstu notkun. Hreinsun vafragagna getur einnig eytt þeim. Gestauppköst eru geymd sérstaklega og eyðast ekki við útskráningu.
Hægt er að sækja einstök skjöl eða öll vistuð skrif á aðganginum sem JSON-skrá, líka uppköst í ruslinu. Óvistaðar breytingar og gestauppköst fylgja ekki heildarafritinu. Rusl er endurheimtanlegt í allt að 30 daga. Varanleg eyðing fjarlægir textann; lágmarksauðkenni er varðveitt til að gömul tæki endurstofni ekki eytt uppkast. Sjálfvirk hreinsun rusls er enn í undirbúningi.
Þegar eyðing aðgangs er virk getur þú valið „Eyða aðgangi“ neðst í „Mín skrif“. Staðfest eyðing fjarlægir Kveikjarinn-aðganginn og öll skrif hans, líka rusl og vistunarkvittanir. Endurheimtarafrit í þessum vafra eru hreinsuð. Google-aðgangur, gestauppköst, sóttar skrár og afrit á öðrum tækjum eyðast ekki með þessari aðgerð. Sæktu skrif áður en þú eyðir aðganginum. Varðveisla í þjónustuskrám og afritum þjónustuaðila þarf að vera útfærð í fullbúinni fræðslu áður en nemendaprófun hefst.
Áður en nemendaprófun hefst
Birta þarf fullbúna fræðslu um vinnslu, varðveislu, þjónustuaðila, réttindi og samskipti við skóla áður en raunveruleg nemendagögn fara í skýjavistun. Þessi síða lýsir núverandi undirbúningi og kemur ekki í stað þeirrar fræðslu.
Til baka á forsíðu